E-14, MATT / E-44, HÁLFGLJÁANDI
Gerð:
KÓPAL LEIFTURLAKK er glært, vatnsþynnanlegt, lyktarlaust akrýllakk án mengunar af lífrænum leysiefnum. KÓPAL LEIFTURLAKK flýtur vel og myndar lakkfilmu sem gulnar ekki.
Notkunarsvið:
KÓPAL LEIFTURLAKK er ætlað til notkunar innanhúss á viðarþiljur, húsgögn, einkum skápa, hurðir, hillur o.fl.
Lökkun:
Með pensli, rúllu, eða sprautu. Einnig með háþrýstisprautu.
Varúðarflokkur:
00 - 1.
Þynnir og hreinsun áhalda:
Vatn.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.