-V-55, SILKIMATT / V-95, HÁGLJÁANDI I
Gerð:

KJARNALAKK er glært, einþátta pólýúreþanlakk, gert úr arómatísku
pólýísósýanati og leysiefnum. KJARNALAKK er vætandi lakk með
góðri fyllingu og er í hópi slitsterkustu, efnaþolnustu og
veðurheldnustu lakka sem völ er á í dag. KJARNALAKK harðnar
fyrir áhrif raka andrúmsloftsins og harðnar því fyrr sem raka og
hitastig er hærra.
Notkunarsvið:
KJARNALAKK er einkum ætlað á við eða stein, þar sem krafist er
mikils slitstyrks, efnaþols eða veðrunarþols, svo sem á parket,
kork (allt að 4mm þykkan) og önnur viðargólf, steinlögð og steinsteypt
gólf, íþróttaáhöld o.fl. Við endurlökkun er mikilvægt að léttslípa gamla
lakkið og þynna KJARNALAKKIÐ 10-20% í fyrstu umferð.
Lökkun:
Með pensli, rúllu, eða sprautu.
Varúðarflokkur:
3 - 3.
Þynnir og hreinsun áhalda:
KJARNAÞYNNIR.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.