EÐALGÓLFLAKK er fljótþornandi, alkýðbundið lakk sem er létt í notkun, flýtur vel og myndar slitsterka, gljáandi filmu. EÐALGÓLFLAKK þolir vel olíur og kröftuga þvotta.
SAFÍR er einþátta, hágljáandi pólýúretanlakk sem harðnar fyrir áhrif raka andrúmsloftsins
og harðnar því fyrr sem raka- og hitastig er hærra. SAFÍR heldur lit og gljáa mjög vel.