Gerð:

EPOX 1 er tvíþátta, vatnsþynnt, epoxýbundið lakk, sem er í flokki slitsterkustu lakktegunda.
Notkunarsvið:
EPOX 1 hefur frábæra viðloðun við flest öll byggingarefni þar á meðal keramikflísar. EPOX 1 er því ákjósanlegt á gólf og veggi, í fiskvinnsluhúsum, öðrum matvælaiðnaði, verksmiðjum og annars staðar, þar sem mikils álags er að vænta.
Litir:
EPOX 1 er framleitt í nokkrum STAÐALLITUM.
Áferð:
Hágljáandi.
Herðir:
EPOX 1 HERÐIR sem blanda skal vel saman við lakkið rétt fyrir notkun í rúmmálshlutföllunum 1,7 hlutar EPOX 1 HERÐIR á móti 2 hlutum af EPOX 1.
Málun:
Með pensli, rúllu eða sprautu. Einnig með háþrýstisprautu.
Varúðarflokkur:
00 - 5 .
Þynnir:
Vatn
Hreinsun áhalda:
Með volgu vatni og sápu strax að verki loknu.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.