Gerð:

Care Triad er glært, tvíþátta, sýruhert lakk, sem gefur góða fyllingu.
Notkunarsvið:
Care Triad hentar vel á húsgögn og innréttingar.
Eiginleikar:
Care Triad er mjög hraðþornandi og er létt í slípun. Care Triad gefur lítið formaldehyð frá sér hvort heldur er við lökkun eða hörðnun. UPPFYLLIR E1 KRÖFUR.
Lökkun:
Care Triad er best að bera á flötinn með loftsprautu, háþrýstisprautu eða lakkteppavél. Mikilvægt er að efnisáburður sé jafn og í samræmi við fyrirskrifaða efnisnotkun.
Herðir:
Í Care Triad skal blanda Bernyl Herði 309, 7,5 % í rúmmáli.
Þynnir:
Fyrir sprautun skal þynna lakkið með Bernylþynni 309 eða 31. Flæðiseigja skal vera 17-25 sek fyrir loftsprautu, 25-30 sek fyrir háþrýstisprautu og 25-40 sek fyrir lakkteppavél.
Notatími:
Minni enn 3 dagar eftir íblöndun herðis.
Hreinsun áhalda:
Með Bernylþynni 31 eða 309.
Annað:
Viðurinn skal vera vel pússaður. Slípa skal eftir fyrstu umferð til að fjarlægja hugsanlega ýfingu viðarins og til að tryggja örugga viðloðun við næstu umferð.
Álagsþol (Möbelfaktaresistens)
Viðnámsþol flatar eftir lökkun er háð mörgum þáttum, t.d. hörðnunarhitastigi, tíma, loftræstingu og rakastigi. Samanlagður efnisáburður hefur einnig áhrif á viðnámsþolið.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.