Gerð:
Bernyl Facett er glært, einþátta, sýruhert lakk, sem gefur góða fyllingu.

Notkunarsvið:
Bernyl Facett er til alhliða nota.
Eiginleikar:
Bernyl Facett er mjög hraðþornandi og er létt í slípun. Bernyl Facett er auðvelt að
sprauta á lóðrétta fleti.
Lökkun:
Bernyl Facett er best að bera á flötinn með loftsprautu, háþrýstisprautu eða lakkteppavél.
Einnig er hægt að beita dýfingu. Mikilvægt er að efnisáburður sé jafn og í samræmi við fyrirskrifaða efnisnotkun.
Þynnir:
Fyrir sprautun skal þynna lakkið með Bernylþynni 309. Flæðiseigja skal vera 20-25 sek fyrir loftsprautu, 20-25 sek fyrir háþrýstisprautu, 25-30 sek fyrir lakkteppavél og 13 - 15 sek fyrir dýfingu.
Hreinsun áhalda:
Með Bernylþynni 309.
Annað:
Viðurinn skal vera vel pússaður. Slípa skal eftir fyrstu umferð til að fjarlægja hugsanlega ýfingu viðarins og til að tryggja örugga viðloðun við næstu umferð.
Álagsþol (Möbelfaktaresistens)
Viðnámsþol flatar eftir lökkun er háð mörgum þáttum, t.d. hörðnunarhitastigi, tíma, loftræstingu og rakastigi. Samanlagður efnisáburður hefur einnig áhrif á viðnámsþolið.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.