Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
 
Care Prime
Lýsing
Gerð:

Care Prime er hyljandi, tvíþátta, sýruhert grunnlakk, sem gefur mjög góða fyllingu.

    Notkunarsvið:

Care Prime hentar vel á húsgögn og innréttingar.

 Eiginleikar: 

 Care Prime er mjög hraðþornandi og er létt í slípun.  Care Prime gefur lítið 
 formaldehýð frá sér hvort heldur er við lökkun eða hörðnun. 
 


Leiðbeiningar
Lökkun:
Care Prime er best að bera á flötinn með loftsprautu, háþrýstisprautu eða lakkteppavél. Mikilvægt er að efnisáburður sé jafn og í samræmi við fyrirskrifaða efnisnotkun.

Herðir:
Í Care Prime skal blanda Bernyl Herði 309, 13 % í rúmmáli. 

Þynnir:
Fyrir sprautun skal þynna lakkið með Bernylþynni 31.  Flæðiseigja skal vera 17-25 sek fyrir loftsprautu, 30-35 sek fyrir háþrýstisprautu og 30-45 sek fyrir lakkteppavél.

Notatími: 
1-2 dagar eftir íblöndun herðis.

Hreinsun áhalda:

Með Bernylþynni 31 eða 309.

Annað: 

Viðurinn skal vera vel pússaður. Slípa skal eftir fyrstu umferð til að fjarlægja hugsanlega ýfingu viðarins og til að tryggja örugga viðloðun við næstu umferð.



Eðliseiginleikar
Þurrktími:
Loftþornun við 20°C, 3-4 klst. 
Hröðuð þornun við 35-40°C, 30 - 45 mín.

Hitastig má ekki vera yfir 30°C við stöflun. Uppgefinn tími er leiðbeinandi og háður aðstæðum hverju sinni.



Þykkt (flæðiseigja):
Um 150 - 160 sek. (DIN 4 við 20°C).

Eðlismassi:
1,28 g/ml (25°C).  Skv. SIS staðli. 

Þurrefni:
Um 65 % af massa.

Efnisnotkun:

100 - 150 g/m2 fyrir loftsprautu, háþrýstisprautu eða lakkteppavél. 

Gljái:

Matt.


Hitastig við notkun:
Bæði lakkið, flötur og loft verða að vera yfir 18°C.

Geymsluþol:

Um 12 mánuðir í óátekinni umbúð.


 
 

Álagsþol (Möbelfaktaresistens)
Viðnámsþol flatar eftir lökkun er háð mörgum þáttum, t.d. hörðnunarhitastigi, tíma, loftræstingu og rakastigi.  Samanlagður efnisáburður hefur einnig áhrif á viðnámsþolið.

Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000