Gerð:
Bernolin Klarlack er einþátta sellulósalakk.

Notkunarsvið:
Bernolin Klarlack er til alhliða nota.
Eiginleikar:
Bernolin Klarlack er fljótþornandi lakk sem má pólera.
Lökkun:
Bernolin Klarlack er best að bera á flötinn með loftsprautu, háþrýstisprautu eða lakkteppavél.
Mikilvægt er að efnisáburður sé jafn og í samræmi við fyrirskrifaða efnisnotkun.
Þynnir:
Fyrir sprautun skal þynna lakkið með Bernylþynni 309. Flæðiseigja skal vera 30-40 sek fyrir loftsprautu, 30-40 sek fyrir háþrýstisprautu og 85-95 sek fyrir lakkteppavél.
Hreinsun áhalda:
Með Bernylþynni 309.
Annað:
Viðurinn skal vera vel pússaður. Slípa skal eftir fyrstu umferð til að fjarlægja hugsanlega ýfingu viðarins og til að tryggja örugga viðloðun við næstu umferð.
Álagsþol (Möbelfaktaresistens)
Viðnámsþol flatar eftir lökkun er háð mörgum þáttum, t.d. hörðnunarhitastigi, tíma, loftræstingu og rakastigi. Samanlagður efnisáburður hefur einnig áhrif á viðnámsþolið.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.