Gerð:
JÖTUN-GRIP er alhliða snertilím af neóprengerð. JÖTUN-GRIP þolir vel
vatnsálag, hitabreytingu upp að 70°C og kælingu niður að -20°C.
Notkunarsvið:
JÖTUN-GRIP er einkum ætlað til límingar innanhúss, á plast-
og korkflísum, plastdúkum, ýmis konar listum á veggi gólf o.fl.
Notkun:
JÖTUN-GRIP má bera á fletina með pensli, rúllu, spaða eða sprautu (þá þynnt nokkuð).
Líming:
JÖTUN-GRIP er borið á báða límfleti. Sé um gljúpa fleti að ræða, ætti að tvíbera JÖTUN-GRIP á límfletina og þynna fyrri umferðina u.þ.b. 20-30% með JÖTUN-GRIPSÞYNNI.
Varúðarflokkur:
3 - 1.
Þynnir og hreinsun áhalda:
JÖTUNGRIPSÞYNNIR.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.