Gerð:

ÞILJUGRIP 02 er gert úr tilbúnu gúmmíi og fenólharpís. ÞILJUGRIP 02 er rakahelt.
Notkunarsvið:
ÞILJUGRIP 02 er ætlað til límingar á viðarþiljum, spónaplötum, krossviði,
gipsóníti, plasthúðuðum þiljum o.fl. á veggi úr tré, steini, áli og járni.
Einnig má líma trélista, leirflísar og hljóðeinangrunarplötur með ÞILJUGRIPI 02.
Litur:
Ljósbrúnt.
Notkun:
Skera skal um 5 mm op, undir 45° horni, á túpuna og rjúfa innri loku stútsins. Þá fæst um 20 m límþráður úr hverri túpu (310 ml). ÞILJUGRIP 02 er borið á annan hvorn límflötinn og þeim síðan þrýst saman. ÞILJUGRIP O2 grípur fyrr, ef hlutirnir eru teknir strax í sundur aftur, límfletirnir látnir standa opnir í um 5 mín. og þeim síðan þrýst vel saman á ný.
Varúðarflokkur:
3 - 1.
Hreinsun:
Límleifar má fjarlægja með FJÖLÞYNNI. Þó ber að athuga fyrst, hvort efni flatar þolir hreinsivökvann.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.