Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
KÓPAL AKRÝLHÚÐ Gljástig 20 og 60
akrylhud-60akrylhud-20
KÓPAL AKRÝLHÚÐ er vatnsþynnt akrýlmálning, með mikla þvottheldni og
hylur sérlega vel. KÓPAL AKRÝLHÚÐ er gerlavarin, þolir vel rakaálag og
hefur mjög góða viðloðun.
LOFT- OG VEGGMÁLNING
loft_og_veggmalning_4l
LOFT- OG VEGGMÁLNING er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. LOFT- OG VEGGMÁLNING hylur sérlega vel og hefur sæmilega þvottheldni.
KÓPAL LOFTAMÁLNING
loftamalning
KÓPAL LOFTAMÁLNING er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning, sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL LOFTAMÁLNING hylur sérlega vel og gefur mjög jafna áferð. 
KÓPAL GLITRA 10
glitra_4l
KÓPAL GLITRA er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL GLITRA hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun.
KÓPAL BIRTA 20

birta_4l
KÓPAL BIRTA er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning, sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak
eða formaldehýð. KÓPAL BIRTA hylur sérlega vel og hefur mikla þvottheldni.

KÓPAL FLOS 40
kopal_flos_4l
KÓPAL FLOS er silkimatt vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og lyktarlítið. KÓPAL FLOS myndar filmu, sem hefur mikla þvottheldni, gott veðrunarþol og gulnar ekki.
BLÆR
blaer_30-90
BLÆR er fljótþornandi alkýðbundið lakk, sem er afar létt í notkun, flýtur vel og myndar sterka og áferðarfallega filmu.
KRAFTLAKK
KRAFTLAKK er fljótþornandi alkýðbundið lakk, sem er létt í notkun, flýtur vel og
myndar sterka og varanlega gljáandi lakkfilmu.  KRAFTLAKK hefur gott
veðrunar- og slitþol og er auðvelt að halda því hreinu.
KÓPAL MATT 4
kopal_matt
KÓPAL MATT er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL MATT hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun.
KRAFT HREINSIR

KRAFT HREINSIR er vatnsþynnt sterkt hreinsiefni til þrifa innanhúss.

KÓPAL PERLULAKK40/80
perla_40_sperla_80_s
KÓPAL PERLULAKK er lyktarlítið vatnsþynnanlegt akrýllakk, sem er hraðþornandi og gulnar ekki. KÓPAL PERLULAKK flýtur sérlega vel, myndar harða og áferðarfallega filmu.
Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000