Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
 
KÓPAL MATT 4
Lýsing
Gerð:
KÓPAL MATT er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning
sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð.
KÓPAL MATT hylur einstaklega vel, hefur mjög góða
þvottheldni og ýrist lítið við rúllun.

 Notkunarsvið:
KÓPAL MATT er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss.
KÓPAL MATT er sérlega hentug á stofur og víðar þar sem óskað
er mattrar áferðar án þess að slakað sé á kröfum um þvottheldni.
Litir:
KÓPAL MATT er framleidd í nokkrum STAÐALLITUM og að auki
er boðið upp á mikinn fjölda lita með litun á KÓPAL MATT í stofni.

Áferð:
Mött.

Leiðbeiningar:
Málun:
Með pensli, rúllu, eða sprautu.

Varúðarflokkur:
00 - 1.

Þynnir og hreinsun áhalda:
Vatn.


Eðliseiginleikar:
Þurrktími:
30-60 mín.við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir 4-8 klst., breytilegt eftir aðstæðum.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 50 Poise. (Brookfield HA 5/50, 25°C).

Gljái:
Um 4 (60°)

Eðlismassi:
Um 1,45 g/ml (25°C), breytilegt eftir lit.

Þurrefni:
Um 58% af massa eða um 40% af rúmmáli (reiknað), breytilegt eftir lit.

Efnisnotkun:
Um 0,10 l/m2 í umferð, samsvarar um 40 µm meðalþurrfilmuþykkt.

Lágmarks vinnsluhitastig
Um 5°C.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/a 
75 g/l (2007)/30 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 1 g/l.

 


Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000