Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
LOFT- OG VEGGMÁLNING
Lýsing
Gerð:
LOFT- OG VEGGMÁLNING er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin lífræn leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. LOFT- OG VEGGMÁLNING hylur sérlega vel og hefur sæmilega þvottheldni.
 
 
Notkunarsvið:
LOFT- OG VEGGMÁLNING er einkum ætluð á fleti sem minna mæðir á, hvort sem er loft eða veggi. Einnig sem undirmálning undir KÓPAL GLITRU, KÓPAL BIRTU eða KÓPAL FLOS, hvort sem er á steinsteypta fleti, múr, tré eða spónaplötur innanhúss.

Litir:
Hvít. Fæst einnig sérlituð þegar um nokkurt magn er að ræða.

Áferð:
Almött.

Leiðbeiningar:
Málun:
Með pensli, rúllu, eða sprautu. Einnig með háþrýstisprautu.

Varúðarflokkur:
00 - 1.

Þynnir og hreinsun áhalda:
Vatn.


Eðliseiginleikar:
Þurrktími:
30 mín.við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir 4-8 klst.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 45-50 Poise. (Brookfield HA 5/50, 25°C).

Gljái:
Um 3 (60°).

Eðlismassi:
Um 1,46 g/ml (25°C).

Þurrefni:
Um 53% af massa eða um 30% af rúmmáli (reiknað).

Efnisnotkun:
Um 0,09-0,11 l/m2 í umferð, samsvarar um 30 µm meðalþurrfilmuþykkt.

Lágmarks vinnsluhitastig
Um 5°C.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/a 
75 g/l (2007)/30 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 1 g/l.

 


Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000