Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
EÐALGÓLFLAKK
Lýsing
Gerð:
EÐALGÓLFLAKK er fljótþornandi, alkýðbundið lakk sem er létt í notkun, flýtur vel og myndar slitsterka, gljáandi filmu. EÐALGÓLFLAKK þolir vel olíur og kröftuga þvotta.


 

Notkunarsvið:

EÐALGÓLFLAKK er einkum ætlað á viðar- og steingólf þar sem slitálag er verulegt. Ráðlagt er að nota fremur SAFÍR eða EPOXÝLAKK þar sem mikið efna- og/eða slitálag er til staðar.


Litir:
EÐALGÓLFLAKK er framleitt í nokkrum staðallitum og að auki má fá mikinn fjölda lita með litun í stofn 1.

Áferð:
Gljáandi.


Leiðbeiningar
Málun:
Mála má með pensli, rúllu, eða sprautu.

Varúðarflokkur:
2 - 1.

Þynnir og hreinsun áhalda:
MÍNERALTERPENTÍNA.


Eðliseiginleikar
Þurrktími:
Um 2-4 klst. við 20°C.

Yfirlökkun:
Eftir 5-7 klst., breytilegt eftir aðstæðum.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 70 KU (25°C).

Gljái:
Um 80 (60°).

Eðlismassi:
Um 1,10 g/ml (25°C).

Þurrefni:
Um 65% af massa eða um 50% af rúmmáli (reiknað), lítið eitt breytilegt eftir litum.

Efnisnotkun:
Um 0,08 - 0,10 l/m2 í umferð, háð hrjúfleika flatar, lökkunaraðferð og aðstæðum. Samsvarar um 50 µm þurrfilmuþykkt.

Lágmarks vinnsluunarhitastig:
Flöturinn sem mála á skal vera minnst 3°C yfir daggarmörkum loftsins, meðan á málun og þornun málningar stendur.


 
 

Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000