Gerð:
KÓPAL GLITRA er vatnsþynnanleg, lyktarlaus plastmálning sem inniheldur engin leysiefni, ammóníak eða formaldehýð. KÓPAL GLITRA hylur einstaklega vel, hefur mjög góða þvottheldni og ýrist lítið við rúllun.
Notkunarsvið:
KÓPAL GLITRA er einkum ætluð til að mála veggi innanhúss. KÓPAL GLITRA er sérlega hentug á stofur, ganga og svefnherbergi þar sem óskað er hálfmattrar áferðar.
Litir:
KÓPAL GLITRA er framleidd í nokkrum STAÐALLITUM og að auki er boðið upp á mikinn fjölda lita með litun á KÓPAL GLITRU í stofnum.
Áferð:
Hálfmött.
Málun:
Með pensli, rúllu, eða sprautu.
Varúðarflokkur:
00 - 1.
Þynnir og hreinsun áhalda:
Vatn.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.
Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/a
75 g/l (2007)/30 g/l (2010). Þessi vara innheldur að hámarki 1 g/l.