Af öllum þeim fjölda lita, sem búa má til í litakerfi Málningar hf yfir 7500 litir eru örfáir hreinir litir helst skærgulir og sterkrauðir sem hafa slaka hulu/þekju. Til að málningarferlið verði eðlilegt við notkun á þessum litum, þá mælum við með því að mála fyrst með Grunnlit og þá dugar að mála tvær umferðir með litnum sem þið völduð. Söluaðilar okkar benda í flestum tilvikum á þessa leið til að fá fullnægjandi niðurstöðu á verkinu. Hikið ekki við að spyrja ef þið eruð í vafa.
Myndin sýnir eina umferð af Grunnlit og tvær umferðir af yfirmálningu. Góð hula.