Enn ein ný vörutegund hefur litið dagsins ljós hjá Málningu ehf. Hér er um að ræða vatnsþynnt epoxýlakk EPOX 1. Lakkið er afrakstur umhverfishæfrar vöruþróunar Málningar og Iðntæknistofnunar. Í þróunarvinnunni var leitast við að velja hráefni sem valda lágmarks mengun á umhverfi okkar. Hér er því mikið framfaraspor fyrir neytendur. EPOX 1 er einkum ætlað á gólf og aðra fleti sem mikið mæðir á, svo sem lagerhúsnæði, fiskvinnslur og annað iðnaðarhúsnæði. Athugið það þarf ekki lengur að tæma allar vörur úr hillum vegna hættu á mengun frá leysiefnum. EPOX 1 er nánast án lífrænna leysiefna og myndar grjótharða, hágljáandi filmu með mjög góðan slitstyrk. EPOX 1 er fáanlegt í þremur STAÐALLITUM Dúngrátt, Ljósdrapp og Hvítt. Einnig er hægt að lita lakkið í fjölda lita.