Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
KÓPAL GLITRA 10 - Ný og enn betri

KÓPAL GLITRA er búin að vera á markaði í nokkuð óbreyttri mynd í um 10 ár. Hún hefur notið mikilla vinsælda bæði hjá fagmönnum og leikmönnum. Alltaf er þó hægt að gera gott betra og nú hefur þessi úrvals vara farið í gegnum gaumgæfilega endurskoðun á rannsóknarstofunni með tilliti til þess hvaða eigninleika væri hægt að bæta og höfum við þá nýtt okkur álit fjölmargra jafnt innan fyrirtækisins sem utan. Útkoman er ný og enn betri KÓPAL GLITRA, má þar t.d. nefna hulu, vinnslueiginleika og þvottheldni. Hulan var mjög góð en við bættum þar verulega við og því er líklegt að KÓPAL GLITRA slái við öllum hliðstæðum vörum. Allir sem mála leggja mikla áherslu á að gott sé að vinna með málninguna þ.e.a.s. að hún ýrist lítið við rúllun, leggist jafnt á flötinn og gefi jafnan gljáa. Því var lögð mikil alúð við þessa þætti. KÓPAL GLITRA er eftir sem áður lyktarlaus og án ammóníaks, formaldehýðs og leysiefna. Því hefur KÓPAL GLITRA auðveldað mörgum, sem eru með astma og ofnæmi, að mála heimili sín. Við viljum hafa KÓPAL GLITRU í fararbroddi og þessar breytingar leggjast á eitt með að svo verði.
 

Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000