Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
DEMANTLAKK - nýtt vatnsþynnt hálfgljáandi pólýúretanlakk

Málning er nú að setja nýja, einkar athyglisverða vöru á markað. Hér er um að ræða vatnsþynnt hálfgljáandi pólýúretanlakk, sem myndar mjög harða og slétta filmu. DEMANTLAKK flýtur mjög vel og myndar einstaklega áferðarfallega filmu, sem er auðvelt að þrífa. Það er því kjörið að nota DEMANTLAKK á veggi þar sem mikið mæðir á, svo sem á barnaheimilum, skólum og víðar við svipaðar aðstæður.
Í mörgum tilvikum hafa verið gerðar kröfur um að byggingar af þessu tagi séu málaðar með leysiefnaþynntri alkýðmálningu með tilheyrandi óþægindum fyrir málara og alla starfsemi, sem er til staðar. Nú er auðvelt að losna við öll þessi óþægindi með því að nota DEMANTLAKK. Þar sem DEMANTLAKK flýtur mjög vel og myndar slétta áferð hentar það mjög vel á glugga, hurðir, húsgögn o.fl. hvort sem lakkinu er penslað, rúllað eða sprautað.
DEMANTLAKK er framleitt hvítt og einnig í stofnum sem hægt er að lita í mikinn fjölda lita.

Hjá Málningu er mikil áhersla lögð á að þróa vörur sem menga ekki umhverfið við notkun. DEMANTLAKKIРer mikilvægt skref á þessari braut ekki síður en KÓPAL 0% lyktarlaus málning og þá einnig EPOX 1, vatnsþynnt, níðsterkt epoxýlakk.
 

Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000