Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
Rannsóknir og tækniþjónusta

Segja má að hlutverk rannsóknastofunnar sé þrískipt.

Í fyrsta lagi er um að ræða eftirlit með framleiðslu og hráefnum. Tryggja verður að hráefnin standist þær kröfur sem til þeirra eru gerðar, prófa ný hráefni og veita samþykki fyrir kaupum á efnum frá nýjum framleiðendum. Fylgst er með allri framleiðslu og viðeigandi mælingar gerðar meðan á framleiðslu stendur. Í lokin eru framkvæmdar mismunandi viðamiklar mælingar til að tryggja að gæði framleiðslunnar séu jöfn svo viðskiptavinir fái ávallt vöru sem leysir hlutverk sitt jafnvel af hendi.

Í öðru lagi er ráðgjöf og tækniþjónusta við viðskiptavini fyrirtækisins. Málning ehf leggur mikla áherslu á að viðskiptavinir eigi greiðan aðgang að þeirri þekkingu og reynslu sem er til innan veggja fyrirtækisins. Miklu skiptir einnig fyrir okkur að kynnast sjónarmiðum og reynslu viðskiptavinanna. Fátt varðar betur leiðina til árangurs.

Síðast en ekki síst er vöruþróun sem er undirstaða fyrir framtíðina. Málning ehf hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á að kynna nýjungar á sviði yfirborðsmeðhöndlunar. Má þar nefna að þegar fyrirtækið var stofnað árið 1953 hófst byltingarkennd nýjung með framleiðslu á vatnsþynntri húsamálningu. Nú á tímum er einmitt veigamesti drifkrafturinn í þróun málningarefna umhverfismál bæði gagnvart ytra umhverfi og einnig gagnvart vinnuumhverfi. Tæpum 40 árum eftir stofnun fyrirtækisins var á ný kynnt umfangsmikil breyting á innanhússmálningu með tilkomu málningar sem inniheldur engin lífræn leysiefni og er án ammóníaks og formaldehýðs. Þessi málning er nánast algjörlega lyktarlaus og auðkennd með 0% merki.

Þróun nýrra vörutegunda og endurbætur á eldri vörum hefur tryggan sess í starfseminni. Mikilvægt er á tímum hraðra breytinga að koma sér upp samböndum við erlend fyrirtæki á mismunandi sérsviðum svo nýjungar verði teknar í notkun sem allra fyrst. Okkar tíma er illa varið við leit að lausn vandamála sem þegar hafa verið leyst. Öflug „utanríkisþjónusta" skiptir því miklu máli nú sem fyrr og stórkostlegar framfarir í samskiptum stytta leiðir milli landa.

Hinu er ekki að leyna að hér á landi eru ýmis þau mál sem ekki verða nema að litlu leyti leyst með aðstoð erlendis frá. Skýrasta dæmið hér um er yfirborðsmeðhöndlun á steinsteypu utanhúss. Á þessu sviði hefur Málning ehf lagt verulega fjármuni í vöruþróun sem hefur skilað sér í öflugu vöruvali á þessu sviði með STEINVARA 2000 í broddi fylkingar. Einnig hefur fyrirtækið tekið þátt í fjölmörgum rannsóknarverkefnum með Rannsóknastofnun Byggingariðnaðarins og ýmsum iðnfyrirtækjum. Þessar rannsóknir treysta mjög grundvöllinn undir vöruþróunina með því að auka þekkingu á steinsteypu, samspili hennar við umhverfið og hvernig unnt er að hafa áhrif á þetta samspil með ýmsum gerðum af málningu og skyldum efnum.

Eftirfarandi eru nokkur dæmi um rannsóknaverkefni af þessu tagi:

  • Sprungur í steinsteypu: rannsókn á vatnshegðan og viðgerðarefnum.
  • Þróun íslenskrar málningartegundar sem dregur úr öldrun steinsteypu (carbonation).
  • Vatnsfælnar vegghúðir.
  • Varanleg lokun sprungna.
  • Steinfletir utanhúss: ný efnistækni við yfirborðsfrágang.
Meira

Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000