Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
Umhverfisstefna Málningar hf.

Málning hf fékk fyrst íslenskra málningarfyrirtækja starfsleyfi í júní 1998.  Öllum ákvæðum þess hefur verið fylgt til hins ítrasta og allar eftirlitsmælingar verið vel innan þeirra marka, sem settar eru í leyfinu.  Umhverfismál hafa frá fyrstu tíð verið hátt skrifuð hjá Málningu, t.d. var félagið fyrst á markað með vatnsþynnta málningu rétt eftir stofnun þess 1953.  Hér fylgja þeir punktar, sem félagið mun hafa að leiðar ljósi í fyrstu umhverfisstefnu þess.

  • Byggingar, umhverfi og starfsaðstaða skal vera til fyrirmyndar hjá fyrirtækinu.
  • Það er markmið að allar aðstæður séu á þann veg að vinnuslys heyri sögunni til.
  • Við vöruþróun er lögð höfuðáhersla á að færa sem flestar vörur að 0% merkinu og draga sem mest úr notkun hættulegra efna og hætta notkun eiturefna.  0% merkið stendur fyrir málningu án lífrænna leysa, ammoníaks eða formaldehýðs.
  • Í framleiðslunni verður leitast við að tileinka sér hreina framleiðslutækni, þar sem markið er sett á góða nýtingu á orku, vatni og hráefnum.  Stefnt er að því að rýrnun á hráefnum og umbúðum sé ávallt undir 2% af ársnotkun.
  • Sorp og spilliefni verða flokkuð í samræmi við óskir förgunaraðila.  Fyrirtækið mun leitast við, að lágmarka þessa flokka.  Haldið verður bókhald yfir magn sorps og spilliefna, þ.a. hægt verður að bera saman niðurstöður á milli ára.
  • Fyrirtækið mun fylgjast vel með þróun, breytingum á lögum og reglugerðum er varða umhverfismál.  Allar breytingar er varða framleiðslu og sölu á málningu munu verða teknar upp hið fyrsta.
  • Stjórnendur fyrirtækisins munu leitst við að efla umhverfisvitund starfsmanna og beina viðskiptavinum inn á braut umhverfisvænna vara.
  • Við innkaup tækja og rekstrarvara verður lögð áhersla á að velja vörur, þ.a. þær hafi sem minnst áhrif á umhverfið.
Meira

 

 

       Baldvin Valdimarsson  framkvæmdastjóri          


Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000