Gerð:
SANDSPARSL RAKAÞOLIÐ er emúlsjónsbundið sandsparsl með fylliefnum sem hafa kornastærð allt að 0,3 mm og fullnægir kröfum sem gerðar eru til sparsla í votrýmum.
Notkunarsvið:
SANDSPARSL RAKAÞOLIÐ er einkum ætlað til spörslunar á steinsteyptum veggjum innanhúss þar sem rakaálag er til staðar.
Litur:
Ljósblár
Áburður:
Með sandsparslsprautu eða spöðum.
Varúðarflokkur:
00 - 1.
Þynnir og hreinsun áhalda:
Vatn.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.