Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
KJÖRVARI 14
Lýsing

Gerð:
KJÖRVARI 14 er gagnsæ viðarvörn, gerð úr vatnsheldum alkýðolíum, öflugum fúa- og rotvarnarefnum og ljósheldum litarefnum. KJÖRVARI 14 er þunnfljótandi, smýgur vel inn í viðinn og hleypir raka úr viðnum auðveldlega í gegnum sig.

Notkunarsvið:
KJÖRVARI 14 er ætlaður á hvers konar við, heflaðan sem óheflaðan, einkum utanhúss þar sem þess er óskað að viðaráferð sjáist. Kjörvaraborinn viður hefur ekki áhrif á nærliggjandi gróður og hentar því vel t.d. á tréverk gróðurhúsa.

Litir:
KJÖRVARI 14 er framleiddur glær og í nokkrum STAÐALLITUM að auki er boðið upp á mikinn fjölda lita með litun á KJÖRVARA 14 í stofni.

Áferð:
Gagnsæ.


Leiðbeiningar:

Efnismeðferð:
KJÖRVARA 14 má bera á flötinn með pensli, svampi eða dýfingu Hugsanlegt umframmagn sem ekki gengur inn í viðinn, skal þurrka af eftir 10-15 mín.

Varúðarflokkur:
3 - 1.

Þynnir:
MÍNERALTERPENTÍNA.

Hreinsun áhalda:
MÍNERALTERPENTÍNA.



Eðliseiginleikar

Þurrktími:
5-6 klst. við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir 8-12 klst., breytilegt eftir aðstæðum.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 12 sek. (DIN 4; 25°C).

Eðlismassi:
Um 0,86 g/ml (25°C).

Þurrefni:
Um 30% af massa eða um 25% af rúmmáli (reiknað).

Efnisnotkun:
Um 0,06-0,10 l/m2 í umferð, breytilegt eftir gleypni flatar og aðstæðum.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000