Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
 
ÁLBRONS HITATRAUST
Lýsing

Gerð: 
ÁLBRONS  er einsþátta hitaþolin málning. 

Notkunarsvið:
ÁLBRONS má nota á ýmsa járnhluti, sem verða fyrir hitaálagi upp að 250°C, svo sem útblásturs rör, vélahlutar o.þ.h. ÁLBRONS má einnig nota sem loka umferð utanhúss í alkýðkerfum. 

Litur: 
Álgrár. 

Áferð:
Hálfmött.

Leiðbeiningar

Málun:
Með rúllu, pensli, eða háþrýstisprautu.

Varúðarflokkur: 
2 - 1.

Þynnir og hreinsun áhalda:
TERPENTÍNA.


Eðliseiginleikar

Þurrktími:
Um 1 - 2 klst. við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir um 8 - 12 klst., breytilegt eftir aðstæðum.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 55 KU (25°C).

Eðlismassi:
Um 1,0 g/ml (25°C).

Þurrefni:
Um 40% af massa eða um 36% af rúmmáli (reiknað).

Efnisnotkun:
Um 0,07 - 0,10 l/m2 í umferð, breytilegt eftir hrjúfleika flatar, málunaraðferð og aðstæðum. Samsvarar um 25 µm þurrfilmuþykkt.

Lágmarks vinnsluhitastig:
Flöturinn sem mála á, skal vera minnst 3° C yfir daggarmörkum loftsins, meðan á málun og þornun málningar stendur.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/i  
600 g/l (2007)/500 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 480 g/l. 

 


Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000