Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
ÞOL
Lýsing

Gerð:
ÞOL er feit alkýðmálning sem er létt í notkun, flýtur vel og myndar sterka og varanlega hálfgljáandi lakkfilmu. ÞOL hefur mikið veðrunarþol.

Notkunarsvið:
ÞOL er einkum ætlað til notkunar á bárujárnsþök og aðra málmfleti utanhúss, þar sem mikið mæðir á og óskað er hálfgljáandi áferðar.

Litir:
ÞOL er framleitt í nokkrum STAÐALLITUM en að auki er boðið upp á mikinn fjölda lita með litun á ÞOLI i stofnum.

Áferð:
Hálfgljáandi (Silkimatt).

Leiðbeiningar

Málun:
Með sprautu, rúllu eða pensli.

Varúðarflokkur:
2 - 1 til 2 - 3, breytilegt eftir lit.

Þynnir og hreinsun áhalda:
Með MÍNERALTERPENTÍNU.


Eðliseiginleikar

Þurrktími:
Snertiþurrt eftir um 3-5 klst. við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir 8-12 klst., breytilegt eftir aðstæðum.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 70 KU (25°C).

Eðlismassi:
Um 1,20 g/ml við (25°C), lítið eitt breytilegt eftir lit.

Þurrefni:
Um 70% af massa eða um 50% af rúmmáli (reiknað), lítið eitt breytilegt eftir lit.

Efnisnotkun:
Um 0,08-0,12 l/m2 í umferð, breytilegt eftir hrjúfleika flatar, málunaraðferð og aðstæðum. Samsvarar um 50µm þurrfilmuþykkt.

Lágmarks vinnsluhitastig:
Flöturinn sem mála á, skal vera minnst 3°C yfir daggarmörkum loftsins, meðan á málun og þornun málningar stendur.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/i  
600 g/l (2007)/500 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 400 g/l.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000