Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
Akrýl - ÞOL
Lýsing

Gerð:
Akrýl - ÞOL er vatnsþynnt, hálfgljáandi akrýlmálning, sem er létt í notkun.
Akrýl - ÞOL myndar filmu með mjög gott veðrunarþol og gljáheldni.

Notkunarsvið:
Akrýl - ÞOL er einkum ætlað á bárujárn, ýmsar gerðir af klæðningum og aðra málmfleti utanhúss, þar sem mikið mæðir á og óskað er hálfgljáandi áferðar.

Litir:
Akrýl - ÞOL er framleitt í nokkrum STAÐALLITUM og að auki er unnt að fá mikinn fjölda lita með litun á stofnum.

Áferð:
Hálfgljáandi (silkimött).

Leiðbeiningar

Málun:
Með sprautu, rúllu eða pensli.

Varúðarflokkur:
00 - 1.

Þynnir og hreinsun áhalda:
Vatn.


Eðliseiginleikar

Þurrktími:
Snertiþurrt eftir um 30 - 60 mín. við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir 6 - 12 klst., breytilegt eftir hitastigi og öðrum aðstæðum.

Gljái:
Um 50 (60°).

Þykkt (flæðiseigja):
Um 35 Poise. (Brookfield HA 5/50, 25°C).

Eðlismassi:
Um 1,10 - 1,20 g/ml (25°C), breytilegt eftir lit.

Þurrefni:
Um 50% af massa eða um 35% af rúmmáli (reiknað), lítið eitt breytilegt eftir lit.

Efnisnotkun:
Um 0,08 - 0,12 l/m2 í umferð, breytilegt eftir hrjúfleika flatar, málunaraðferð og aðstæðum. Samsvarar um 35 my þurrfilmuþykkt .

Lágmarks vinnsluhitastig:
Minnst 5°C við flötinn.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/i  
140 g/l (2007)/140 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 40 g/l.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000