Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
FJÖLHÚÐ
Lýsing

Gerð:
FJÖLHÚÐ er hálfgljáandi, hraðþornandi akrýlmálning, sem hefur gott efnaþol og gefur mjög góða tæringarvörn með réttum ryðvarnargrunni. Má mála við lágt hitastig.

Notkunarsvið:
Lokaumferð í eðlisþornandi málningarkerfi, t.d. á gáma og önnur stálvirki.

Eðliseiginleikar:

Litir: Samkvæmt litakorti
Þurrefni ( % af rúmmáli ): 40 ± 2
Blossamark: 25°C
Áferð: Hálfgljáandi
Gljáheldni: Frábær
Sveigjuþol: Gott
Vatnsþol: Mjög gott
Slitþol: Gott

Leysiefnaþol:

Takmarkað
Efnaþol Gott

Efnisnotkun:

Filmuþykkt í umferð - míkron

Reiknuð þekja - m2/l

Þurr

Blaut

Möguleg:

60 -100

150 - 250

6,7 - 4,0

Dæmigerð:

80

200

5,0


Málun:

Undirbúningur flatar:
Yfirborð flatar verður að vera hreint og þurrt, óhreinindi skal hreinsa með viðeigandi hreinsiefni og þvo með ferskvatni.

Leiðbeiningar við málun:

Áhöld: Háþrýstisprauta. Pensill eða rúlla fyrir minni verk.
Blöndun herðis (rúmmál) Einþátta (án herðis).

Þynnir/Hreinsun áhalda:

Fjölþynnir, (Jotun þynnir Nr. 7 )
Háþrýstisprauta, leiðbeiningar :
Þrýstingur við spíss 15 MPa (150 Bar, 2100 psi.)
Spíss: 0,018"-- 0,026" ( 0,46 -- 0,66 mm )
Sprautugeisli: 40 --65°
Sigti: Athugið að sigti séu hrein.


Aðstæður við málun:
Flöturinn sem mála á, skal vera minnst 3°C yfir daggarmörkum loftsins. Hita- og rakastig skal mæla í nánd við flötinn sem mála á.

Þurrktími:
Þurrktími er almennt háður hreyfingu loftsins, hitastigi, filmuþykkt og fjölda málningarumferða. Tölurnar í töflunni miðast við:

  • Góða loftræstingu ( utanhúss eða eðlilega lofthreyfingu ).
  • Ráðlagða filmuþykkt.
  • Eina umferð á óvirkt undirlag.

Hitastig undirlags 5 °C 10 °C 23 °C 35 °C
Snertiþurrt 40 mín. 30 mín. 20 mín. 15 mín.
Gegnumþurrt 17 klst. 15 klst. 10 klst. 6 klst.
Yfirmálunartími 1
Lágmark 3 klst. 2,5 klst. 2 klst. 1,5 klst.
Hámark 2 -------- -------- --------- --------

1 Upplýsingarnar eru miðaðar við yfirmálun með málningu af sömu gerð.

2 Fyrir málun skal flöturinn vera hreinn og þurr.

Líta verður á tölurnar í töflunni hér að ofan sem leiðbeinandi. Raunverulegur yfirmálunartími getur verið lengri eða skemmri, háður málningunni sem fyrir er, filmuþykkt, málningarkerfinu sem var valið, fjölda umferða, loftræstingu, hitastigi, kröfum um meðhöndlun hlutanna, styrk filmunnar á fyrstu stigum o.fl.


Aðrar Upplýsingar

Tillaga að málningarkerfi: 
FJÖLGRUNNUR 1 x 40 míkron (þurrfilma) 
FJÖLHÚÐ 1 x 80 míkron (þurrfilma)

Geymsla:
Vöruna skal geyma í samræmi við reglugerðir. Varan er best geymd á svölum og vel loftræstum stað, varin frá hita og beinu sólarljósi. Umbúðir skal geyma þéttlokaðar.


Meðhöndlun:
Sýnið aðgæslu. Hrærið upp fyrir notkun.

Umbúðir:
5 L, 20 L

Varúðarráðstafanir:
Vinsamlegast lesið varúðarleiðbeiningar á umbúðum. Við sprautun er góð loftræsting nauðsynleg. Varist innöndun á sprautuúða. Notið loftgrímu við sprautun. Forðist snertingu við hörund. Þvoið málningu af hörundi með viðeigandi hreinsiefni, sápu og vatni. Fari málning í augu skal skola þau með miklu vatni og leita aðstoðar læknis umsvifalaust.

Ítarlegar upplýsingar um hættur og öryggisráðstafanir við notkun er að finna á Öryggisblöðum.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000