Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
STEINVARI 2000

STEINVARI 2000 er terpentínuþynnanleg akrýlbundin málning, sem hefur þá einstöku eiginleika að vera þétt gegn vatni í fljótandi ástandi, en hleypa raka í loftkenndu ástandi vel í gegnum sig, eða um tvöfalt betur en hefðbundin plastmálning.
STEINAKRÝL

STEINAKRÝL er terpentínuþynnanleg akrýlmálning, sem þornar eingöngu við uppgufun leysiefna.
KÓPAL STEINÞYKKNI

KÓPAL STEINÞYKKNI er einþátta, vatnsþynnanleg akrýlmálning, sem myndar mjög teygjanlega filmu, jafnvel við lágt hitastig.
KÓPAL STEINTEX

KÓPAL STEINTEX er emúlsjónsmálning gerð úr ósápanlegu akrýlbindiefni og lútarþolnum litar og fylliefnum. KÓPAL STEINTEX hefur sérstaka eiginleika til að hleypa raka auðveldlega í gegnum sig.
REGNVARI 40
REGNVARI 40 er vatnsfæla, vatnstær lausn af mónósílani,
sem smýgur afar vel inn í öll gljúp, steinrík byggingarefni.
REGNVARI 40 binst steininum órjúfanlegum efnatengjum og
gerir hann þannig mjög varanlega vatnsfælin, án þess að
hafa áhrif á rakaflutning í loftkenndu ástandi og truflar því
ekki rakaskipti steinsins við umhverfið.
VATNSVARI 40

VATNSVARI 40 er vatnsfæla, vatnstær lausn af mónósílani, sem smýgur afar vel inn í öll gljúp, steinrík byggingarefni. VATNSVARI 40 binst steininum órjúfanlegum efnatengjum og gerir hann þannig mjög varanlega vatnsfælin, án þess að hafa áhrif á rakaflutning í loftkenndu ástandi og truflar því ekki rakaskipti steinsins við umhverfið.
MEKLÓ UPPLEYSIR

MEKLÓ UPPLEYSIR er málningar- og lakkuppleysir sem inniheldur metýlenklóríð. Við notkun bólgnar málningarfilman upp og losnar frá yfirborðinu, þannig að auðvelt er að fjarlægja hana með sköfu og/eða vatni. MEKLÓ UPPLEYSIR er þykkur vökvi, sem stendur vel á lóðréttum flötum og unnt er að bera þykkt á.
STÉTTVARI

STÉTTVARI er leysiefnaþynntur akrýlgrunnur, sem einkum er ætlaður á ýmis konar mynstursteypu.
Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000