Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
STEINVARI 2000
Lýsing

Gerð:
STEINVARI 2000 er terpentínuþynnanleg akrýlbundin málning, sem hefur þá einstöku eiginleika að vera þétt gegn vatni í fljótandi ástandi, en hleypa raka í loftkenndu ástandi vel í gegnum sig, eða um tvöfalt betur en hefðbundin plastmálning.

Notkunarsvið:
STEINVARI 2000 fullnægir ítrustu kröfum um yfirborðsmeðhöndlun á múr og steinsteyptum flötum utanhúss þar sem hann er gæddur eftirtöldum sérkostum.

    1. Hleypir raka (gufu) úr steininum auðveldlega í gegnum sig.
    2. Er þéttur gegn slagregni.
    3. Er sjálfgrunnandi, þ.e. sérstök grunnun er óþörf í flestum tilvikum þótt um duftsmitandi fleti sé að ræða.
    4. Þolir regn fljótlega eftir málun.
    5. Þolir að málað sé við lágt hitastig (a.m.k. 10 stiga frost).
    6. Hefur frábært veðrunar- og alkalíþol.

Litir:
STEINVARI 2000 er framleiddur í um 10 STAÐALLITUM. Auk þess er boðið upp á sérlitun, þegar um kaup á umtalsverðu magni er að ræða.

Áferð:
Slétt, mött.

Leiðbeiningar

Málun:
Nota má pensil, rúllu eða sprautu. STEINVARI 2000 hentar sérlega vel til rúllunar beint á stein. Ráðlegt er að fara 2 umferðir og fyrri umferð þá gjarnan lítillega þynnt (5-15%).

Varúðarflokkur:
2 - 1.

Þynnir:
MÍNERALTERPENTÍNA, ef þörf krefur.

Hreinsunáhalda:
MÍNERALTERPENTÍNA.


Eðliseiginleikar

Þurrktími:
Um 1,5-2 klst.við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir minnst 8-16 klst.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 110-120 KU (25°C).

Eðlismassi:
Um 1,4 g/ml við (25°C), svolítið breytilegt eftir lit.

Þurrefni:
Um 72% af massa eða um 48% af rúmmáli (reiknað), svolítið breytilegt eftir lit.

Efnisnotkun:
Um 0,17 l/m2 í umferð, samsvarar um 80 µm meðalþurrfilmuþykkt.

Hitastig við málun:
A.m.k. -10°C til + 30°C. Flöturinn skal þó vera minnst 3°C yfir daggarmörkum loftsins.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/c  
450 g/l (2007)/430 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 450 g/l.

 


Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000