Hafðu samband Forsíða Málaðu húsið Litakort Reiknivél
Leita :: Málning hf :: Vörur :: Innanhúss :: Utanhúss :: Viðarvörn :: Skip og Stálvirki
STEINAKRÝL
Lýsing

Gerð:
STEINAKRÝL er terpentínuþynnanleg akrýlmálning, sem þornar eingöngu við uppgufun leysiefna.

Notkunarsvið:
STEINAKRÝL er sérstaklega hannað til notkunar á múr og steinsteypta fleti utanhúss við íslenskar aðstæður. STEINAKRÝL er mjög veðurheldið, hefur frábært alkalíþol og viðloðun við stein, er ágætlega þétt gegn vatni (slagregni) en hleypir þó auðveldlega í gegnum sig raka úr steinveggjum.

Sérkostir:

  1. Þolir að málað sé við lágt hitastig (a.m.k. 10 stiga frost).
  2. Þolir regn fljótlega eftir málun.
  3. Er sjálfgrunnandi, þ.e. sérstök grunnun með BINDILAKKI eða „festi" er óþörf í flestum tilvikum, þó um duftsmitandi fleti sé að ræða.

Litir:
STEINAKRÝL er framleitt í um 10 STAÐALLITUM og að auki má fá mikinn fjölda lita með litun í stofnum. 

Áferð:
Slétt, mött.

Leiðbeiningar

Málun:
Nota má pensil, rúllu eða sprautu. STEINAKRÝL hentar sérlega vel til rúllunar beint á stein. Á beran stein er ráðlegt að fara 2 umferðir.

Varúðarflokkur:
2 - 1.

Þynnir:
MÍNERALTERPENTÍNA, ef þörf krefur.

Hreinsun áhalda:
MÍNERALTERPENTÍNA.


Eðliseiginleikar

Þurrktími:
Um 1,5-2 klst.við 20°C.

Yfirmálun:
Eftir minnst 8-16 klst.

Þykkt (flæðiseigja):
Um 110-120 KU (25°C).

Eðlismassi:
Um 1,4 g/ml við (25°C), svolítið breytilegt eftir lit.

Þurrefni:
Um 70% af massa eða um 45% af rúmmáli (reiknað), svolítið breytilegt eftir lit.

Efnisnotkun:
Um 0,17 l/m2 í umferð, samsvarar um 75 µm meðalþurrfilmuþykkt.

Hitastig við málun:
A.m.k. -10°C til + 30°C. Flöturinn skal þó vera minnst 3°C yfir daggarmörkum loftsins.


 
 
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.

Skv. reglugerð 1025/2005 þá eru viðmiðunarmörk VOC fyrir þessa vöru fl. A/c  
450 g/l (2007)/430 g/l (2010).  Þessi vara innheldur að hámarki 450 g/l.



Málning hf | Dalvegur 18 | 201 Kópavogur | Kt. 4502694849 | S: 580 6000