Gerð:
REGNVARI 40 er vatnsfæla, vatnstær lausn af mónósílani
og síloxani, sem smýgur afar vel inn í öll gljúp, steinrík
byggingarefni. REGNVARI 40 binst steininum órjúfanlegum efnatengjum og gerir hann þannig mjög varanlega vatnsfælin, án þess að hafa áhrif á rakaflutning í loftkenndu ástandi og truflar því ekki rakaskipti steinsins við umhverfið.
Notkunarsvið:
REGNVARI 40 er ætlaður á múr, steinsteypu og önnur steinrík byggingarefni til að koma í veg fyrir vatnsísog þeirra. REGNVARI 40 er sérlega áhrifaríkur við að hefta vatnsísog um háræðasprungur. REGNVARI 40 gefur
yfirborðinu sterk vatnsfráhrindandi áhrif og hentar
því þar sem flöturinn á að standa ómálaður. Eigi að mála flötinn er ráðlegt að nota leysiefnaþynnta málningu í fyrstu umferð t.d. STEINVARA 2000 eða STEINAKRÝL.
Áburður:
Flöturinn skal vera hreinn og þurr áður en hann er baðaður með REGNVARA 40. Best er að nota við það sprautu með lágum þrýstingi sem gefur jafna bunu. Þá er sprautað þvert yfir lóðrétta fleti með 20-30 cm millibili. Gjarnan er byrjað neðst og haldið upp til að fylgjast betur með framgangi verksins. Einnig má nota pensil eða rúllu. Gæta skal þess að tilskilið magn fari á flötinn.
Varúðarflokkur:
1 - 2.
Hreinsun áhalda: a
Með MÍNERALTERPENTÍNU. Asetón má nota til að fjarlægja REGNVARA 40 sem hefur þornað, t.d. af rúðum.
Þurrktími:
Nokkrar mínútur.
Yfirmálun:
Eftir 1-2 daga; ef undirlagið er mjög blautt er lengri tími ráðlegur.
Eðlismassi:
Um 0,82 g/ml (25°C).
Efnisnotkun:
Um 0,20 l/m2 í umferð, breytilegt eftir gleypni flatar og aðstæðum.
Hitastig við áburð:
Flöturinn skal vera vel yfir daggarmörkum lofts.
Upplýsingar þessar eru samkvæmt okkar bestu vitund. Enga ábyrgð eða tryggingu fyrir árangri er þó unnt að gefa, þar eð skilyrði við notkun eru utan takmarka okkar umráða.